Að læra til að öðlast færni
Að læra til gera (e. learning to do): Veitir einstaklingum færni sem gerir þeim kleift að taka þátt í samfélagi og hagkerfi heimsins (UNESCO, 1996).

Markmið menntunar til sjálfbærni:
-
Að skilja þá hugsun sem felst í hugtakinu sjálfbærni.
-
Að efla umhverfisvitund; þekkingu, skilning og væntumþykju á náttúru, umhverfi og fólki.
-
Að auka vilja til náttúruverndar og virðingu fyrir fjölbreytileika náttúru og mannlífs.
-
Að temja sér lífsvenjur sem stuðla að heilbrigði Jarðar, náttúru og fólks.
-
Að þjálfa hæfni til lýðræðis; samlíðan með fólki, gagnrýna hugsun og samskipti.
-
Að horfa til framtíðar, virða rétt komandi kynslóða til sæmandi lífs og heilbrigðis (Sigrún Helgadóttir, 2013).