top of page

Aldur:

3-5 ára.

 

Markmið:

  • Að börnin æfi sig að spá í árstíðir

  • Að þjálfa börnin i að fylgjast með og taka eftir breytingu á náttúrunni

 

Tenging við sjálfbærni:

  • Að efla umhverfisvitund; þekkingu, skilning og væntumþykju á náttúru og umhverfi.

  • Að auka vilja til náttúruverndar og virðingu fyrir fjölbreytileika náttúru.

  • Að horfa til framtíðar

 

Áhöld: 

Ekki nauðsynleg.

 

Lýsing á leik:

Þegar börnin eru í samverustund spyrjið börnin nokkurra spurninga sem tengdar eru veðrinu, til dæmis:

  • Hvað gerist ef það verður mjög kalt í kvöld?

  • Hvað getum við gert ef okkur er kalt?

  • Hvað gerist ef það byrjar að snjóa?

  • Hvernig er snjórinn?

  • Hvað getum við gert úr snjóum?

  • Hvað getum við gert úti í snjóum? o.s.frv.

Börnin geta svarað og leikið með líkamanum sínum svörin sem þau hafa.

 

Kennari þarf að hafa í huga:

Þennan leik er hægt að nota á öllum árstíðum. Ræðið við börnin um til dæmis hvernig veðrið sé á veturna. Gefið börnunum sem dæmi viku til að fylgjast með veðrinu, farið í vettvangsferðir og ræðið við börnin um hvað þau sjá í ferðunum .

 

Heimild:

Frumsamið af Vesselu.

Að læra til að öðlast færni

Hvað gerist ef...?
bottom of page